laugardagur, maí 28, 2005

Íslendingar eru klikk

Víða hefur maður nú orðið var við þessa celeb dýrkun (fræga fólks dýrkun) en hvergi eins og hér. Sem er út af fyrir sig fyndið því ekki þarf fólk nú að vinna sér mikið til frægðar til að vera orðið celeb á Íslandi. Nema hvað...

Nú er sumsé að byrja í útvarpinu þáttur með útvarpskonu sem er að byrja aftur eftir langt hlé (og ég sem var svo fegin þegar hún hætti). Þátturinn er sendur út einu sinni í viku og ef ég er ekki að misskilja eitthvað mun þessi kona velja eitt íslenskt celeb í hverjum þætti. Þetta sama celeb á svo að búa til lista yfir þá tíu Íslendinga sem honum/henni þykja merkilegastir.

Jæja. Þegar öll celebin hafa valið sinn lista, fær sauðsvartur almúginn allrar náðarsamlegast að velja hvert þessara celeba fær að bjóða öllum tíu manneskjunum á sínum lista... í matarboð.

Og það er allt og sumt.

Jæja, eruð þið ekki orðin spennt yfir að fá að taka þátt í valinu? Allir að pissa í sig bara, erþakki?

Það sorglegasta við þetta er að það er fullt af fólki sem fylgist spennt með og tekur þátt.

Greyin.
Forvitnispúkinn

Sumarfrí?


Posted by Hello

fimmtudagur, maí 19, 2005

Ja hérna

Nú er ég hissa. Ég sem var svo viss um að Selma kæmist áfram. Já, og eiginlega bara viss um að hún myndi vinna... eða allavega svona næstumþví. Ég er samt eiginlega ekkert svekkt, bara hissa.

Mér fannst voðalega fá lög þarna sem varið var í. Eiginlega einkenndist keppnin af ljóskum sem voru að týna brjóstunum á sér og George Michael wanna-be-but-sure-as-hell-isn't-um. Og hvað var þetta með þessa frá Hvíta Rússlandi sem söng eins og cross breed af Stevie Nicks og kindinni Dolly? Ég hélt hún myndi enda þarna alls nakin blessunin, á gærunni einni saman.

En nú vita auðvitað allir hvað á að gera erþakki? Nú er það bara ÁFRAM NOREGUR! Mikið hrikalega voru þeir ógisslega frábærir. Söngvarinn meira að segja með svartan varalit og allt, spandex og lögguhattar; hrein snilld!

Svo þið sem ætluðuð að hætta við partýið á laugardaginn og leggjast í þunglyndi... nú breytið þið bara planinu og skiptið út íslensku fánunum á ostabakkanum fyrir norska. Ekki málið!



Lifi Rokkið! =D Posted by Hello

fimmtudagur, maí 05, 2005

Uppstillingadagur

Í boði þessa sannkristna samfélags sem ég bý í, var frí í vinnunni hjá mér í dag, sem og hjá flestum öðrum. Ég þakka bara fyrir mig og vona að enginn lái mér að notfæra mér þennan frídag þó ég geri það á annara forsendum. Finnst dálítið merkilegt þegar ég spái í það, að dagar sem tengjast trúnni skuli vera svo algengir og sjálfsagðir sem almennir frídagar. Mér finndist allavega skrýtið ef allt í einu fengju allir frí daginn sem Muhammed fór ti Mekka eða eitthvað álíka. Þó vita allir að hér býr fullt af fólki sem trúir á eitthvað annað en Jesú Krist og co. En ég ætla nú samt ekkert að vera að kvarta yfir því að fá frí sko.

Planið: Vinna á morgun og svo bara helgi. Ekkert sérstakt planað fyrir hana... any suggestions?

föstudagur, apríl 29, 2005

Hélstu að atti-katti-nóa væri rugl?

Var að keyra heim úr Bónus með Júlíu í bílnum og útvarpið stillt á Útvarp Latabæ. Mjög fyndin útvarpsstöð með mjög góða stefnu, en tónlistin sem er spiluð er allt frá þessum klassísku barnalögum upp í hálf klúra útilegusöngva, sem maður hefur aldrei sungið nema undir áhrifum.

Nema hvað, við erum semsé að keyra þegar upphafstónar þessa lags byrja að óma. Og einhverra hluta vegna fór ég að hlusta á textann: (ég birti þetta með fyrirvara um villur, enda lærði ég aldrei þessa vísu)

Ég á litla mús, hún heitir Heiða
ég var að greiða henn'í dag, herra Jón.
Hún er voða sæt, hún kann að dansa
og hún dansar svo vel, herra Jón.

Þó að hún sé feit, þá er hún ofsa mikið krútt
með rauða slaufu í skottinu.
Ég mun alltaf hafa hana hjá mér
ég ætla'ð gefa henni ost, herra Jón.

Hún mun aldrei fá að sleppa frá mér,
ég ætla'ð gæta hennar vel, herra Jón.

Mig langar að vita á hverju höfundurinn var þegar hann samdi þetta. Og hver er þessi 'herra Jón'?! Svo er fólk hissa á því að æska vor sé á hraðri leið til glötunar. Ég er ekki frá því að ég sjálf þurfi eins og einn-tvo tíma í þerapíu eftir þessa lífsreynslu.



Heiða? Posted by Hello

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Það er hvort eð er ekkert gaman að vera venjulegur...

Enn ein hávísindaleg könnunin hér á Bla-inu hefur nú leitt af sér athyglisverðar niðurstöður, sem segja um leið ýmislegt um þá sem hingað rata inn.

Spurningunni; hvernig lestu dagblaðið? var svarað eftirfarandi:

11% byrja fremst
56% lesa blaðið afturábak
11% lesa teiknimyndasögurnar fyrst

og 22% lesa blaðið á hvolfi!

Þarf nokkuð frekari vitnanna við? En við erum samt öll ágæt á okkar sérstaka hátt erþakki ;)

miðvikudagur, apríl 20, 2005

Ofsakátur Jónsson

Af visir.is:

Má heita Hilaríus

"Það má heita Hilaríus samkvæmt ákvörðun mannanafnanefndar. Nefndin tók beiðni um eiginnafnið Hilaríus til greina nýverið og hefur fært það á mannanafnaskrá. Nafnið tekur eignarfallsendingu, eða til Hilaríusar, og telst uppfylla ákvæði laga um mannanöfn.

Samkvæmt ensk-íslenskri orðabók þýðir „hilarius“ að einhver sé ofsakátur eða eitthvað sé stórskemmtilegt."

Ja, hérna. Ekki er öll vitleysan eins...

mánudagur, apríl 11, 2005

Þvílík snilld!

"Þessi vélknúna vekjaraklukka á hjólum hringir og skýst síðan í felur þannig að eigandinn verður að fara á fætur og finna hana til að slökkva á henni. Gripurinn er uppfinning Gauris Nandas, framhaldsnemanda við Tækniháskólann í Massachusetts (MIT) í Bandaríkjunum. Hann kallar tækið 'Clocky'." (af mbl.is)

Ég get ímyndað mér að þessi klukka verði hötuð af mörgum morgunsvæfum eigandanum. Ég held ég myndi allavega ekki storka mínu eigin morgungeði með svona grip :)



Clocky! Posted by Hello

þriðjudagur, apríl 05, 2005

"Here fishy, fishy..."

Langþráður draumur rættist um daginn þegar mér áskotnaðist fiskabúr. Nú eigum við mæðgur sinn fiskinn hver (góð byrjun allavega :)

Júlíu fiskur er gulur og heitir Nemo (lesist 'Nímó' með kanadískum hreim). Eitthvað segir mér að hann sé ekki eini skrautfiskurinn með þessu nafni, sbr. alla kettina sem heita Simbi, Nala o.s.frv.

Selmu fiskur er röndóttur og heitir Pig. Selma elskar svín og langar í eitt slíkt sem gæludýr, svo þetta er svona smá friðþæging :)

Ernu fiskur heitir Fluffy, enda rosalega loðinn og krúttlegur... eh... já, einmitt.

Minn heitir svo auðvitað Bobby, eftir Fishernum fræga... enda ljótastur af þeim öllum.


Nemo, Bobby, Pig og Fluffy. Posted by Hello

laugardagur, apríl 02, 2005

Getiði hvað...
(skrolla niður)
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.

DÓTIÐ OKKAR ER KOMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÐ! =oD Posted by Hello

sunnudagur, mars 27, 2005

Gleðilega Páska!

Málshættirnir:

Ég: "Sá er vinur sem í raun reynist"

Erna fékk tvo: "Það gleymist seint sem aldrei hefur lærst" og "Það sem ekki er vert að sé lesið nema einu sinni, er ekki vert að það sé lesið". Ótrúlegt prump þetta.

Selma: "Það er ekkert varið í nema fyrsta kossinn og hinn síðasta, hinir eru ekkert annað en hortittir". Bleeeeeeh...

Júlía: "Von og trú eru þjónar árangursríkra manna"

Voðalega þynnkulegir eitthvað þetta árið, nema kannski minn. Eins og einhver hafi setið og rembst við að búa til eitthvað gáfulegt og endað með eitthvað blaður. Ég kannast allavega ekki við að hafa heyrt þá áður.

Eggjunum voru allavega gerð góð skil og engin vonbrigði þar. Og nú bíðum við bara eftir gámnum með dótinu okkar sem inniheldur m.a. gönguskíðavélina =)



Gleðilega Páskegga! Posted by Hello

fimmtudagur, mars 24, 2005

Jei!

Næstfrægasti Íslendingur í heimi (samkvæmt fjölmiðlum) er lentur í beinni útsendingu. Á móti honum tók hópur fólks, sem í geðshræringu sinni hoppaði, dansaði og kallaði 'Bobby! *klappklappklapp* Bobby! *klappklappklapp', eftir að hafa staðið í nokkra klukkutíma úti á flugvelli í rigningunni og beðið eftir þotu hans. Hann gaf sér þó ekki tíma til að knúsa þessa vini sína, heldur hoppaði upp í bifreið sem beið hans og brunaði burt, enda karlanginn auðvitað þreyttur eftir ferðalagið.

Þetta er nú ekki lítil skrautfjöður í hatt okkar Íslendinga, að geta státað af yfirlýstum gyðingahatara og skaphundi með meiru, og gerir flóru okkar enn skrautlegri, þó auðvitað höfum við verið æðislegir fyrir. Og auðvitað fer hann beint á launaskrá hjá ríkinu eins og aðrir stórmeistarar í skák, skítt með það þó hann hafi lýst því yfir að 'skákin sé steindauð' og hann ætli sér ekki að setjast aftur að tafli.

Ég segi bara eins og greinarhöfundur í Rocky Mountain News: "...verði ykkur hann að góðu!"



Velkominn heim...! Posted by Hello

miðvikudagur, mars 23, 2005

Hvað ætlar þú að gera um páskana?

Það lítur út fyrir að þeir sem hingað koma séu letihaugar upp til hópa. Þar með talin ég :)


Niðurstöður vísindarannsóknar. Posted by Hello

fimmtudagur, mars 17, 2005

This better be the last of it

Hvaða ógeðs skítaveður er þetta? Ég ætla að ganga út frá því sem vísu að hér sé páskahretið á ferð, fullsnemma og þessvegna eins gott að veðurguðinn hagi sér skikkanlega þegar það er gengið yfir.

Búin að kaupa páskaegg (eiginlega fyrir löngu). Þau bíða hér í kassa uppi í skáp og hía á okkur í hvert sinn sem við nálgumst. En við látum sko ekki bugast því við erum sterkar! Rosalega sterkar! (garg... 10 dagar í viðbót)

Ég veit allavega að ég ætla EKKI að fá mér svona:


Páskaegg með Jesú? Posted by Hello

mánudagur, mars 07, 2005

Bara verð að sýna ykkur þessa :)

Þessi ótrúlega myndarlega litla frænka var skírð í gær. Hún heitir því fallega nafni Elísabet Ósk rúsínurass!


Elísabet Ósk Posted by Hello

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Læknur og hjúkrunarkarlar

Ég er mikil jafnréttismanneskja en mun þó seint láta hengja nafn mitt við kvennréttindabaráttu. Ástæðan? Skoðun margra er sú að þetta tvennt sé ekki hægt að aðskilja, en ég vil meina að þarna sé munur á.

Mér finnst alveg ótrúlegt að á Íslandi séu lög þess efnis að ef tveir jafnhæfir einstaklingar af gagnstæðu kyni sækja um sama starfið, skuli veita konunni það. Myndi ég kæra mig um að fá vinnu á þessum forsendum? Í nafni jafnréttis? Nei, ég held ég myndi eftirláta karlinum stöðuna og leita eitthvert annað eftir vinnu. Ég trúi því að engir tveir einstaklingar geti verið nákvæmlega jafn hæfir til eins eða neins. Það hlýtur alltaf að vera hægt að finna eitthvað öðrum til framdráttar, nú eða foráttu. Það eru akkúrat svona mál sem veikja jafnréttisbaráttuna og gefa konum rauðsokkustimpla (í neikvæðri merkingu).

Því miður verð ég oft vitni að því hvað konur eru meðvirkar í kynjamismununinni. Þannig var það þegar Júlía byrjaði á leikskólanum og einn leikskólakennarinn (kona) var að sýna mér deildina. Þegar kom að dúkkukróknum sagði hún eitthvað sem svo: "...hérna leika stelpurnar sér í dúkkó, og svo leika strákarnir sér inni í herberginu þarna með bílana". Var mér að misheyrast? Á menntastofnun á Íslandi (sem ég hélt að stæði nú frekar framarlega í þessum málum) á tuttugustu og fyrstu öld! En vitið þið hvað? Ég er viss um að þessi kona myndi aldrei skrifa upp á það að strákar mættu ekki leika sér að dúkkum eða stelpur að bílum. Þetta var örugglega alveg ómeðvitað.

Í útvarpinu um daginn heyrði ég svo umræður um það hvort koma ætti á leikskólaskyldu á Íslandi. Kona sem þar lét í sér heyra sagði m.a. að ríkið ætti að greiða konum fyrir að vera heima með börnum sínum. Af hverju konum? Til þess að stuðla frekar að því að konurnar séu heima með börnin á meðan karlarnir vinna úti? En er það ekki einmitt það sem við höfum verið að reyna að breyta síðustu árin? Ég er líka alveg viss um að þessi kona var ekki meðvituð um það sem hún var að segja. Hún væri örugglega ekki síður sátt við að karlar fengju borgað fyrir að vera heima með börnum sínum. En það er einmitt þetta "meðvitundarleysi" sem er svo erfitt að eiga við.

Að lokum langar mig að minnast aðeins á blessuð stöðuheitin sem alltaf eru að þvælast fyrir okkur. Þar finnst mér reyndar oft vera óþarflega mikil smámunasemi í gangi. Af hverju má t.d. karlmaður ekki bara vera fóstra? Allar fóstrur voru fóstrur þangað til karlar tóku að leita í störfin. Þá var þeim breytt í leikskólakennara. Ég meina, konur mega vera læknar án þess að nokkur kippi sér upp við það. Ekki er til neitt sem heitir lækna eða lækniskona. Konur geta líka verið þingmenn, enda eru jú konur líka menn. Mín vegna mega karlar alveg vera fóstrur eða hjúkkur, það truflar mig ekki neitt. En það er einmitt þessi endalausa niðurhólfun sem lætur jafnréttismál oft snúast upp í andhverfu sína.

Svo hvernig væri nú að slaka aðeins á í baráttunni og einbeita sér frekar að því að virða hvert annað, vera víðsýn og meðvituð um það sem við segjum og gerum. Þá mun okkur örugglega takast að uppræta þennan fortíðardraug sem kynjamismunun er.

sunnudagur, febrúar 06, 2005

HALLÓ HEIMUR! -ég saknaði þín...

Þá er ég loksins komin með tölvu og nettengingu, eftir fjögurra mánaða rangl á milli rándýrra netkaffihúsa og óstabílla bókasafnstölva. Vonandi eruð þið ekki öll búin að gleyma mér! Ég ætla allavega að vera dugleg við að minna á mig hérna, and that's a promise.

Toodles!

fimmtudagur, desember 30, 2004

Til ykkar allra, elskurnar mínar...

ég vona að þið séuð búin að njóta jólanna og alls sem þeim tilheyrir. Takk fyrir gamla árið líka, og vonandi fer nýja árið vel með ykkur... og munið umfram allt; verið góð við hvert annað!

xoxo

þriðjudagur, desember 21, 2004

Arg!

Mér tókst með einstakri lagni minni að henda öllum bloggaralinkunum út. Man ekki alla linkana, svo þið bloggarar megið endilega senda mér urlin ykkar.

Takk takk.

laugardagur, desember 11, 2004

Helgin

Lenti í veseni í Boston af því að vegabréfið mitt var ekki nógu tæknilegt fyrir þá, sem sagt ekki með segulrönd. Eftir að hafa tekið tvö sett af fingraförum og tvær myndir var settur bleðill í passann minn sem á stendur að ég megi fara til baka í gegnum Boston en síðan ekki söguna meir fyrr en ég er búin að update-a.

Munaði litlu að ég missti af tengifluginu til Halifax út af ruglinu. Þegar upp í þá vél kom settist hjá mér maður um fertugt, angandi af áfengi og sagði eitthvað sem svo; "Well, it's not what I'm used to but I guess it will have to do". Hvort hann átti við að hann væri svona merkilegur og vanur að ferðast á fyrsta farrými veit ég ekki, en sem betur fer var flugþjónninn svo vænn að bjóða manninum annað sæti þar sem fátt var í vélinni, svo ég fékk bæði sætin fyrir mig.

Lenti í Halifax fyrir miðnætti í gærkvöldi og var fagnað af hundi og börnum. Fór seint að sofa en vaknaði snemma, enda klukkan að nálgast hádegi á mínum tíma. Dagurinn í dag hefur svo farið í jólagjafasjopperí sem gekk reyndar vonum framar fyrir utan geðbilaða umferð, enda kann enginn að keyra lengur (nema auðvitað ég) ...ásamt heimsókn í Bangz, sem var auðvitað hápunkturinn!

Í kvöld á svo að fara út að borða og svo er bara eftir að klára að pakka öllu draslinu og stelpunum niður í töskur og halda til baka til Íslands á morgun.