Gleðilegan veturMér fannst fyrsti vetrardagur reyndar tekinn full hátíðlega, þó snjórinn hafi vissulega lífgað upp á skammdegið. Í 'myndir' hérna til hægri má finna nokkrar frá helginni.
birt án ábyrgðar og ber ekki að taka of alvarlega
Dásamleg frétt"Lögregla var kölluð að fjölbýlishúsi í Kópavogi upp úr miðnætti, þar sem kona var út á svölum og öskraði. Hún tjáði lögreglumönnunum að hún birgði svo mikla reiði inni í sér að hún yrði að öskra, hverju sem tautaði og raulaði.
Lögreglumennirnir höfðu skilning á því og buðu henni í bíltúr út fyrir bæinn til að klára málilð, sem hún þáði. Eftir að hafa öskrað nokkra stund uppi í Heiðmörk, var hún tilbúin til að fara heim að sofa, og hefur ekki verið kvartað meira undan henni síðan."
(af visir.is)
Vá, vá, vá...
Maður getur ekki verið heppinn alltaf
Hvað nú?
Áts
Heima, sæta heima...
Önnur sólbaðssaga
Það er komið sumar
Hjálmar og hjálmar