sunnudagur, febrúar 25, 2007

Af hverju ekki?

Af hverju ekki að vana kynferðisafbrotamenn? Þegar maður brýtur af sér á þennan hátt, ítrekað og engar meðferðir eða refsingar bera árangur?

Það telst víst brot á mannréttindum einstaklingsins, en hvaða réttindi hefur maður sem eyðileggur líf annarra markvisst til að svala afbrigðilegum hvötum sínum? Ef til er leið til að bæla þessar hvatir, hvers vegna er þeim ekki beitt og hvers vegna fá þeir aftur og aftur tækifæri til að brjóta af sér? Hver eru mannréttindi þeirra einstaklinga sem dæmdur kynferðisafbrotamaður á eftir að brjóta gegn þegar hann er búinn að sitja af sér?

Er maður sem misnotar börn ekki búinn að fyrirgera sér réttinum til að eignast sjálfur börn? Og er sá sem nauðgar ekki búinn að fyrirgera sér réttinum að fá að stunda kynlíf yfir höfuð?

Þungir þankar á sunnudagsmorgni. Farið vel með ykkur.

4 ummæli:

Sandra sagði...

"lyfjavönun kemur þó til greina ef viðkomandi óskar[þess]"

frábært....!!! ábyggilega margir barnaníðingar sem óska eftir svoleiðis, enda skynsamir menn.....!

eva sagði...

Já, frábært að 'bjóða' þeim þennan möguleika. Afbrotamenn ættu auðvitað allir að fá að velja að sitja í fangelsi, þeir sem brjóta ítrekað umferðarlög að velja hvort þeir missi prófið o.s.frv.

Valkyrjan sagði...

Mikið er ég nú sammála þér

Nafnlaus sagði...

Ætlaði bara að kasta á þig kveðju.

Fann ekki gestbók hér :(

kveðja frá Dk Halldóra Valkyrja