fimmtudagur, júní 17, 2004

Hver er þessi undurfagra kona?

Ég á tvífara! Þessu komst ég að á skoðunarferð minni um nýja vísis-vefinn. Þessi snót ku hafa keypt heilan lager af sjúkrahúsnærbuxum, og gefið þeim nýtt gildi ef ég skil fréttina rétt. Brækurnar eru nokkurs konar andsvar við rassareimabuxunum (G-string), svo nú geta allir sportað bleikum, bróderuðum nærbrókum og híað á G-strengina. Það held ég amma yrði stolt!


Er thad bara harid eda leynist eitthvad meira ad baki... Posted by Hello

5 ummæli:

Asdis sagði...

:) Þetta er nú bara hún Ragna úr Mosfellsdalnum. Systir hennar var með mér í bekk alla barnaskólann og gaggó líka! En já.. það má alveg sjá smá svip með ykkur ef maður reynir

eva sagði...

Híhí, jú það er víst betra að passa uppá að reimin týnist ekki Gurrý ;)

Svo hún heitir þá Ragna... það tók ekki langan tíma að bera kennsl á snótina, svona er landið lítið :)

Valkyrjan sagði...

....snöggt á litið er einhver svipur !

Rúna "Valkyrja"

Sandra sagði...

Þetta er Ragna Fróðadóttir sem saumaði fjólubláa kjólinn hennar mömmu ;)

eva sagði...

Kúl!

Á mamma þín fjólubláan kjól?? :)