sunnudagur, nóvember 21, 2004

Helgin

Óþol vikunnar: Gísli Marteinn, sem tókst að snúa potentially innihaldsríku viðtali við Harry Bellafonte upp í eitthvert ámátlegt píkufliss. "Hvað segirðu, hringdirðu bara í Mækol Djakkson sísona... vá... hahahahahaha".

Maður vikunnar: Pálmi Gestsson, fyrir að ná mér alveg niður í gólf af hlátri með túlkun sinni á Halldóri Ásgrímssyni. "Þakka ykkur fyrir bananana".

Ljóska vikunnar: Birgitta Haukdal sem kynnti nýja 'Birgittu dúkku'.

Gubb vikunnar: Kristján Jóhannsson sem sagðist finnast dúkkan heldur lítil.


Adios í bili.

laugardagur, nóvember 13, 2004

15 ára endurhittingur úr Þinghólsskóla

Reunionið um síðustu helgi var algjörlega frábært. Þarna voru tæplega 50 manns mætt, sem verður að teljast gott þó auðvitað hefði maður viljað hitta fleiri... já barasta alla!
Þarna var borðað, drukkið, dansað og auðvitað skrafað heil ósköp. Fólk var mismunandi mikið (lítið) edrú, og undir restina voru flestir eiginlega bara ekkert edrú lengur... eða svoleiðis ;)

Ég er ekkert að fara út í nánari útlistanir á þessu kvöldi, en hún Kollý gerir því góð skil á sínu bloggi.

Það er allavega ljóst að planleggjarar þessa hittings eiga feitt hrós skilið!

-Og maður er strax farinn að hlakka til þess næsta, sem verður að öllum líkindum eftir fimm ár.

föstudagur, nóvember 05, 2004

Lengi getur vont versnað

Mig langar til að nota hér tækifærið og votta um hálfri bandarísku þjóðinni, sem og heiminum öllum samúð mína vegna endurkjörs Herra Runna. Til ykkar hinna sem kusuð þennan ófögnuð yfir ykkur; gott á ykkur!