Nú árið er (næstum) liðið...
Jæja, nú líður senn að lokum þessa annars ágæta árs, og nýtt og ferskt tekur við í staðinn.
Í tilefni þess ætla ég að biðja alla að skrifa besta eða skemmtilegasta ráðið við þynnku sem þeir kunna í kommentaboxið :)
Takk fyrir samfylgdina á árinu og vonandi hef ég frá einhverju skemmtilegu að segja á því næsta.
Skemmtið ykkur vel á gamlárskvöld og farið varlega!
Blaðrarinn
3 ummæli:
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!
Takk sömuleiðis esskan!
-Þú skuldar þynnkuráð ;)
beta ráð sem ég hef við þynnku er það sem ég nota; sleppa því að drekka áfenga drykki.
Gleðilegt ár :)
Skrifa ummæli