miðvikudagur, september 05, 2007

Í skólanum, í skólanum...

er skemmtilegt... og skrýtið, og scary, og spennandi, og stressandi að veeraaa.

Þriðji dagurinn í dag og ég sit hér inni í kaffiteríu í Þjóðarbókhlöðunni... sem ég hef bæ ðe vei aldrei áður stigið fæti inná. Sit og skrifa og hleð tölvuna fyrir næsta tíma. Háskólalífið einkennist mjög af ráfandi fólki í leit að innstungum til að hlaða lappana sína, enda flestir búnir að leggja stílabækurnar á hilluna, þó þær sjáist alveg ennþá. Ég passa mig allavega á því að hafa eina slíka í töskunni ef einhverjir tæknilegir örðugleikar skyldu poppa upp.

Á þessum þremur dögum hefur mér tekist að koma mér upp vöðvabólgu (held hún hafi reyndar byrjað á sunnudaginn). Mig grunar líka að ég sé að læra meira en gengur og gerist. Ætla að glósa uppúr lesbókunum og enda á því að þýða heilu kaflana. Svo lærir maður á þetta og verður smám saman skipulagðari; lærir ekkert fyrstu vikurnar og svo allt á þremur vikum fyrir próf :Þ

6 ummæli:

Sandra sagði...

við erum greinilega á sama báti...
verðum endilega að taka einn kaffi, hvar sem það leynist, við tækifæri, skólastúlkurnar :-)

eva sagði...

Ekki spurning :)

Nafnlaus sagði...

Djöfuls dugnaður erðetta!
Sorry, ég fór af landinu liggur við áður en ég kom á það. Náði engan veginn að gera allt sem mig langaði að gera, bara það sem ég varð að gera. En við komum aftur um jólin í seinasta lagi og verðum þá vonandi aðeins lengur.
Á kaffið inni ;-)

eva sagði...

Ekki málið, ég held því heitu ;)

Valkyrjan sagði...

Hæ og takk fyrir síðast ! Gangi þér í skólanum !

Rúna

Nafnlaus sagði...

Dóra á sunnudagsbloggrúnti

kvitt kvitt gangi þér vel !