sunnudagur, mars 23, 2008

Gleðilega páska!

Við stelpurnar höfum verið í góðu yfirlæti síðustu daga við að læra, leika og spila tölvuleiki (ég tók að mér lærdóminn). Þar sem við sáum fram á rólega daga ákváðum við að byrgja okkur upp af sýnishornum af hinum ýmsu páskaeggjum, sem svo voru smjöttuð yfir hátíðirnar. Við keyptum semsagt lakkrísegg, rísegg, Kólusegg og egg úr hvítu súkkulaði. Við vorum sammála um það að Kóluseggið ætti vinninginn, bæði í bragðgæðum og innihaldi.

Í þessum orðum skrifuðum er svo lambalærið að eldast í ofninum og fer að koma tími á að henda saman kartöflusalatinu. Eins gott að ég er nýbúin að endurnýja kortið í ræktinni...!

Annars prófaði ég að fasta á föstudaginn langa. Ekki af neinum sérstökum trúarhita, heldur meira af forvitni, en þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég borða ekkert í heilan sólarhring. Kannski maður prófi að láta krossfesta sig á næsta ári... nei, ég segi svona.

Hafið það gott elskurnar, þið fáu sem ennþá þvælist hingað inn.

*knús og kærleikur*

3 ummæli:

Nói sagði...

Svindl! Ég fékk bara eitt egg! :p

Asdis sagði...

Þú veist það að hin ofurheita trúarfasta gengur út á það að borða ekkert meðan sólin er á lofti? Maður þarf nú ekki að svelta sig heilan sólarhring á Íslandi að vetri til, til þess að fasta "löglega" ;-)
Áhugavert samt að prófa. Ég hugsa að ég myndi hrynja niður vegna orkuleysis og blóðsykurskorts eftir ca. 5 tíma.

eva sagði...

Þú veist hvað ég er öfgafull Ásdís mín þannig að ég vildi bara gera þetta almennilega ;)