mánudagur, maí 08, 2006


Success!

Lögðum af stað uppúr þrjú á föstudeginum, sem leið lá í austur. Stoppuðum í Vík og fengum okkur hamborgara með öllu tilheyrandi, svona til að hlaða fyrir næsta dag. Vorum komin í Svínafell um áttaleitið, þar sem við gistum í fjórum fjögurra manna skálum. Ég var í skála með þremur herramönnum, sem ákváðu þessa nótt að fara í hrotukeppni, sem varð mér til lítils svefns!

Vöknuðum klukkan fjögur á laugardagsmorgninum og fengum okkur kjarngóðan morgunmat, og keyrðum svo inn að Sandfelli þaðan sem labbið hófst rétt uppúr sex.

Veðrið var algjörlega meiriháttar í byrjun göngunnar, morgunsólin skein á jöklana og fjöllin í kring. En þegar ofar dró fór að þykkna upp og jöklaþokan tók völdin. Þannig var það alla leið upp á topp, en upp komumst við! Það var ekki leiðinlegt að standa loks á tindinum sem við erum búin að vera að stefna á síðustu mánuði.

Öðru hverju rofaði þó aðeins til og útsýnið var bara stórkostlegt. Þegar við vorum að príla niður Hnjúkinn byrjaði hann að rífa af sér og blasti við okkur í öllu sínu veldi. Og allt í einu leið manni eins og pínulitlu krækiberi, og fannst hreint ótrúlegt að hafa staðið uppi á þessu ísstáli nokkrum mínútum áður.

Ferðin niður gekk vel og við gengum niður úr þokunni á svipuðum stað og hún hafði byrjað. Þá tók við kvöldsólin sem baðaði Öræfin, og ekki var það nú ljótt að sjá :)

Kom niður um fjórtán tímum eftir að gangan hófst; níu tíma upp og fimm niður. Þar þurfti ég að hinkra eftir samferðamönnum mínum sem voru með mér í bíl, og var orðin ansi stíf og "hrolluð" þegar þeir skiluðu sér. Ég hlakkaði mikið til að komast í heita sturtu á Svínafelli, og þegar þangað kom dreif ég mig og náði í föt til skiptanna og inn í sturtu. Nema hvað, vatnið er gashitað og heita vatnið var búið! Þannig að ég fór hrollköld í kalda sturtu, auk þess sem allt inni í klefanum var mígandi blautt svo fötin mín blotnuðu líka.

Jæja, adrenalínið varð að duga til að ylja mér og smá rauðvín hjálpaði líka til. Svo voru grilluð þrjú lambalæri og runnu ljúflega niður í mannskapinn sem var búinn að nærast á samlokum og súkkulaði í heilan dag.

Fórum í háttinn klukkan að ganga eitt, rúmum tuttugu tímum eftir ræsið um morguninn. Og engar hrotur hefðu getað haldið fyrir mér vöku þessa nótt :)

Vöknuðum hress uppúr átta á sunnudeginum og héldum af stað í bæinn eftir morgunmat og frágang. Við þremenningarnir í mínum bíl komum við í sundlauginni á Vík og lögðumst í bleyti í heita pottinn, sem var notalegra en svo að ég ætli að reyna að lýsa því.

Komin heim um fjögurleitið með feitt bros á vör, sem fer örugglega ekki af á næstunni :)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með toppinn

Asdis sagði...

Til hamingju, skvísa! Frábær árangur :D

Nafnlaus sagði...

Vá frábært :)

Sandra sagði...

til hamingju frænka :) ætli maður fari ekki að feta í fótspor ykkar systra bráðum? hlýtur að vera genetískt...

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt hjá þér !

Rúna "Valkyrja"

eva sagði...

Takk, takk! Ómetanlegt að hafa svona 'klapplið' á bakvið sig ;)

Nafnlaus sagði...

Áttu myndir handa okkur að skoða?

eva sagði...

Úff, ég er með haug af myndum! Er bara búin með ul limmitið á flickr þennan mánuðinn. En þær koma þó síðar verði :)