Viljiði ekki höggva af mér handlegginn líka?Hvernig má það vera að í landi þar sem er almenn skólaskylda, sé ekkert þak á álangningu á skólavörur? Ritfangaverslanir og aðrar búðir sem selja skóladót, okra á því eins mikið og þeim þóknast og mokgræða fyrir vikið. Ég man að í fyrra eyddi ég 15000 kalli í ritföng fyrir Ernu og Selmu, og það voru bara blöð, stílabækur og skriffæri sem þær vantaði uppá, af því þær voru að koma inn í skólann á miðjum vetri. Ég meina kommon, hvað haldið þið að blýantur kosti í framleiðslu? Eða nokkur lausblöð eða plastmappa? Skít og kanil, that's how much!
Nú er Júlía að byrja í skólanum og þurfti auðvitað að fá sína skólatösku og tilheyrandi. Bara taskan kostaði yfir 8000. Af því að ég vildi almennilega tösku með góðu baki og axlarólum, en allt undir þessu verði voru bara einhverjar pokatuðrur. Bara pennaveskið (sem reyndar innihélt liti, blýanta o.s.frv.) kostaði 2000 kall! Og það var sko ekki það dýrasta. Svo er blaða- og stílabókadótið eftir.
Þetta stefnir þessvegna hátt í 20. þúsundið fyrir eina sex ára skottu sem er að byrja í skóla. Og þá er ekki talin ný úlpa, skór, húfur, vettlingar o.s.frv. (Eins gott að fara að taka fram prjónana)
Mér finnst þetta algjörlega út í hött (voruð þið kannski búin að fatta það). Mér finnst að það eigi klárlega að setja þak á álagningu á þessar vörur sem við komumst ekki hjá að kaupa á hverjum vetri. Og hananú!