laugardagur, ágúst 20, 2005

Viljiði ekki höggva af mér handlegginn líka?

Hvernig má það vera að í landi þar sem er almenn skólaskylda, sé ekkert þak á álangningu á skólavörur? Ritfangaverslanir og aðrar búðir sem selja skóladót, okra á því eins mikið og þeim þóknast og mokgræða fyrir vikið. Ég man að í fyrra eyddi ég 15000 kalli í ritföng fyrir Ernu og Selmu, og það voru bara blöð, stílabækur og skriffæri sem þær vantaði uppá, af því þær voru að koma inn í skólann á miðjum vetri. Ég meina kommon, hvað haldið þið að blýantur kosti í framleiðslu? Eða nokkur lausblöð eða plastmappa? Skít og kanil, that's how much!

Nú er Júlía að byrja í skólanum og þurfti auðvitað að fá sína skólatösku og tilheyrandi. Bara taskan kostaði yfir 8000. Af því að ég vildi almennilega tösku með góðu baki og axlarólum, en allt undir þessu verði voru bara einhverjar pokatuðrur. Bara pennaveskið (sem reyndar innihélt liti, blýanta o.s.frv.) kostaði 2000 kall! Og það var sko ekki það dýrasta. Svo er blaða- og stílabókadótið eftir.

Þetta stefnir þessvegna hátt í 20. þúsundið fyrir eina sex ára skottu sem er að byrja í skóla. Og þá er ekki talin ný úlpa, skór, húfur, vettlingar o.s.frv. (Eins gott að fara að taka fram prjónana)

Mér finnst þetta algjörlega út í hött (voruð þið kannski búin að fatta það). Mér finnst að það eigi klárlega að setja þak á álagningu á þessar vörur sem við komumst ekki hjá að kaupa á hverjum vetri. Og hananú!


4 ummæli:

Asdis sagði...

Úff.. hvernig er þetta þarna í ykkar skóla? Ekki þarf maður að versla svona mikið fyrir litlu krakkana í okkar skóla. Ætli ég hafi ekki komist upp í mest útgjöld í fyrra þegar ég keypti nýja skólatösku á útsölu. Gangi þér vel að prjóna ;-)

eva sagði...

Ekkert smá... viltu koma við mig?

Kolbrún sagði...

Ja hér, ég man að þegar Unnur byrjaði í Hlíðaskóla þá borgaði maður bara í sjóð og skólinn útvegaði bækur en ég þurfti að kaupa tösku og það allt og já það kostar nóg. Óðinn var að byrja í skóla hér og enn sem komið er hef ég ekki verðið beðin um að láta hann koma með neitt annað en nesti. Það eru skriffæri á borðunum og ég var svo heppin að hafa keypt stórgóðan bakpoka í Svíþjóð í fyrra handa honum á lítinn pening. Meira að segja Unnur Helga sem var að byrja í High School þarf ekki að kaupa stílabækur. Hún fær þetta allt í skólanum. Lengi lifi Skotland (",) Finnst þér ekki skrýtið að eiga ekki lengur leikskólabarn!?

eva sagði...

Jú, það er sko skrýtið... BUUUUUHUUUUUU! *sniff*